Skip to content

Foreldrafélag Hvassaleitisskól

Foreldrafélag er formlegur samstarfsvettvangur forráðamanna þar sem þeim gefst kostur á að ræða skólagöngu barna og hvaðeina sem snertir uppeldi og menntun. Félagið hefur unnið að ýmsum verkefnum með skólanum m.a. útihátíð

Aðrar upplýsingar

Foreldrafélagið nýtur ekki fastra styrkja en aflar fjár með innheimtu félagsgjalda og ýmsum öðrum fjáröflunarleiðum.

Foreldrafélag Hvassaleitisskóla á fulltrúa í SAMFOK Samtökum foreldrafélaga og forráðamenn  í grunnskólum Reykjavíkur. Þá hefur stjórn foreldrafélags Hvassaleitisskóla náið samstarf við stjórnir foreldrafélaga annarra grunnskóla í Laugardal og Bústaðahverfi. Foreldrafélag Hvassaleitisskóla starfar skv. 9. gr. laga um grunnskóla. Þar segir að við hvern grunnskóla skuli starfi foreldrafélag. Foreldrafélagið setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð. Hlutverk foreldrafélagsins er m.a. eftirfarandi:

Markmið

  • að styðja við skólastarfið
  • stuðla að velferð nemenda skólans
  • efla tengsl heimilis og skóla
  • hvetja til virkrar þátttöku forráðamanna í skólastarfi
  • hagsmunagæsla, aðhald og eftirlit með skólastarfinu
  • Stjórn foreldrafélagsins gerir sér verkefnaskrá fyrir hvert ár og er hún birt á heimasíðu skólans þegar hún er tilbúin. Nöfn og netföng verða færð inn eftir aðalfund foreldrafélagsins í haust.

Handbók foreldrafélaga grunnskóla

Heimili og skóli hafa gefið út handbækur fyrir fulltrúa foreldra á öllum skólastigum. Í þeim er lýst starfi foreldrafélaga og foreldra- og skólaráða. Hér getur þú nálgast handbókina sem pdf skjal.

Bekkjarfulltrúar

Bekkjarfulltrúar eru tengiliðir við stjórn foreldrafélagsins.
Bekkjarfulltrúar allra bekkja mynda fulltrúaráð foreldrafélagsins og funda með stjórn þess minnst einu sinni fyrir áramót og einu sinni eftir áramót til að samræma störf og til að fá yfirsýn yfir foreldrastarfið í skólanum.
Bekkjarfulltrúar hafa frumkvæði að því að kalla eftir bekkjarsamkomu en bera ekki einir ábyrgð á framkvæmd hennar.
Bekkjarfulltrúar bera ábyrgð á að virkja með sér aðra foreldra til að manna þær rölthelgar sem bekknum er úthlutað.

Bekkjarfulltrúar geta leitað til foreldrafélagsins með hvað sem er.

Velferð barna og farsæl námsframvinda byggist ekki síst á því að foreldrar styðji við skólagöngu barna sinna og gæti hagsmuna þeirra í hvívetna, eigi gott samstarf við skóla, veiti skólanum viðeigandi upplýsingar og taki þátt í námi barna sinna og foreldrastarfi frá upphafi til loka grunnskóla. Upplýsingagjöf milli heimila og skóla og samráð kennara og foreldra um nám og kennslu er mikilvæg forsenda fyrir árangursríku skólastarfi. Skólar bera ábyrgð á að slíkt samstarf komist á og því sé viðhaldið alla skólagöngu barnsins. Virk hlutdeild og þátttaka foreldra í námi og starfi barna sinna er forsenda þess að foreldrar geti axlað þá ábyrgð sem þeir bera á farsælu uppeldi og menntun barna sinna.

Fréttir úr starfi

Fréttabréf maímánaðar

Hér er síðasta fréttabréf skólaársins 2022-2023 í Hvassaleitisskóla og þar má m.a. finna dagskrá síðustu skólavikunnar: Fréttabréf maímánaðar.

Nánar